Ég held þau elsk'ann!

Victoria Beckham póstaði þessari fallegu mynd af David Beckham, eiginmanni …
Victoria Beckham póstaði þessari fallegu mynd af David Beckham, eiginmanni sínum og föður barna sinna, í tilefni ef feðradeginum. mbl.is/skjáskot

Íslenski feðradagurinn er 11. nóvember en alþjóðlegur feðradagur réð ríkjum í gær, í öðrum í jafntefli gegn Argentínu og þjóðhátíðardegi landsmanna, og fór því þessi erlendi feðrafagnaður framhjá flestum hérlendis. 

Í tilefni af deginum skrifaði Viktoría Beckham svo á instagramreikninginn sinn í gær: „Ég held þau elski hann x. Algerlega besti pabbinn, @davidbeckham, söknum þín brooklynbeckham x,“ en elsta soninn Brooklyn, sem er orðinn 19 ára, vantar á myndina. 

Á myndinni eru pabbi David,  Romeo James (f. 2002), Cruz David (f. 2005) og dóttirin Harper Seven sem er yngst (f. 2011).

Hjónakornin voru saman á árlegri vorsýningu fataframleiðandans Kent & Curwen en David hefur kynnt vörumerki fyrirtækisins. Þrálátur orðrómur hefur verið í gangi í tengslum við skilnað þeirra, orðrómur sem þau hafa alfarið hafnað, en þau fagna 19 ára brúðkaupsafmæli 4. júlí næstkomandi.

Þessari mynd póstaði Victoria Beckham á dögunum, af sér og Harper litlu, að því er virtist til að berjast gegn orðrómnum um yfirvofandi skilnað þeirra hjúa: „Morgunknús x, svo mikil ást. Við elskum þig og söknum @davidbeckham.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert