Ungar hermikrákur með listsýningu

mbl.is/Borgarbókasafn

Undanfarna daga hefur hópur ungra listaspíra setið sumarsmiðju í Borgarbókasafninu, menningarhúsi Grófinni, og útbúið stórfengleg myndlistaverk. Verkin unnu stúlkurnar eftir verkum listamanna Artóteksins, aðferðin var frjáls og skáldaleyfið algjört.

Mikill sköpunarkraftur einkenndi hópinn og útkoman var vægast sagt glæsileg. Augljóst er að myndlistarlíf Reykjavíkurborgar á bjarta framtíð fyrir sér!

Sýningin ber nafnið Hermikrákur í höfuðið á hópnum og stendur hún frá 21. júní til 15. ágúst á fyrstu hæð, Borgarbókasafninu Grófinni. Bókasafnið hvetur gesti og gangandi að kíkja á sýninguna næst þegar þið eigið leið hjá!


Unglistakonurnar voru eftirfarandi:

Auður Erna Ragnarsdóttir

Ása Melkorka Daðadóttir

Birna Dís Baldursdóttir

Bríet Mjöll Þorsteinsdóttir

Drauma Bachmann

Eik Emilsdóttir

Fía Jónsdóttir

Kristín Guðrúnardóttir

Mirra Emilsdóttir

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert