Dauðskammaðist sín fyrir foreldrana

mbl.is/skjaskot

Hún kann að eiga tvær stærstu stjörnur tónlistarbransans fyrir foreldra en það virðist litlu skipta hverjir/hversu merkilegir foreldrar manns eru - maður á alltaf jafn auðvelt með að skammast sín fyrir þá. 

Hin 6 ára gamla Blue Ivy, dóttir listamannanna Beyoncé og Jay-Z, ferðast nú með foreldrum sínum  og tveimur yngri systkinum; tvíburunum Rumi (2017) og Sir (2017), á tónelikaferðalagi þeirra. Á meðan (hverjum) tónleikum stendur birtir parið nánar stundir frá lífi þeirra, meðal annars myndskeið af þeim tveimur sem og börnunum. 

Brot af þessum myndskeiðum sýnir hvar stjörnuparið situr í rúmi saman. Vöktu viðbrögð Blue Ivy mikla kátínu er hún sat meðal áhorfenda. En hún hristir höfuð sitt með áköfum og endar svo á því að grúfa sig niður til að flýja auðmýktina. 

Að lokum birtist hún þó aftur en heldur áfram að hnipra sig saman og grípa fyrir augun. Þessar óþægilegu æskustundir virðast óumflýjanlegar sama hver á í hlut. 

Nekt foreldrannna er sennilega ekki málið þegar maður er bara sex ára gamall: 

Parið á tónleikaferðalagi sínu

A post shared by Beyoncé (@beyonce) on Jun 6, 2018 at 1:21pm PDT



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert