Mannfræði á krakkamáli

Ljósmynd/Aðsend

Nú stendur yfir sýningin Mannfræði á krakkamáli í Gerðubergi í Reykjavík en á henni má sjá afrakstur vinnusmiðju þar sem krakkar á aldrinum 9-12 ára unnu á skapandi hátt með fyrirbærið þjóð. Umsjónarkonur smiðjunnar lögðu fram spurningar og umræðukveikjur, krakkarnir ræddu eigin reynslu og hugmyndir og notuðu ímyndunaraflið til að túlka þær í myndmáli og texta. Sýningin stendur til 24. ágúst.

Ljósmynd/Aðsend

Smiðjan er í tengslum við þróun á nýrri útgáfu í bókaröðinni Mannfræði fyrir krakka (e. Anthropology for Kids) sem áformað er að gera aðgengilega fyrir íslensk börn. Auk bókaraðarinnar samanstendur verkefnið af vinnusmiðjum og skapandi starfi sem leiðir saman sérfræðiþekkingu fullorðinna og sköpunarkraft barna og ungmenna. Aðalhöfundur bókanna og upphafsmaður verkefnisins er frumkvöðullinn og listakonan Nika Dubrovsky. Hún er af rússnesku bergi brotin en lifir og starfar í Berlín, Þýskalandi.

Ljósmynd/Aðsend

Verkefnið er hugsað út frá mikilvægi þess að hvetja börn og ungt fólk til að nýta eigin sköpunarkraft, beita gagnrýninni hugsun og draga sjálfstæðar ályktanir um uppbyggingu eigin samfélags. Ekki síst eru þau hvött til að ímynda sér hið (ó)mögulega og velta fyrir sér merkingu hinna ótal þátta sem að koma saman í menningu okkar.

Ljósmynd/Aðsend

Nánar á vefsíðu Borgarbókasafnsins

Nika Dubrovsky, Ólöf Sverrisdóttir og Sara S. Öldudóttir leiddu smiðjuna.

Verkefnið er unnið í samstarfi við Borgarbókasafnið og List fyrir alla.
Aðrir styrktaraðilar eru Fullveldissjóður og Goethe Institut.

Nánari upplýsingar um verkefnið á heimasíðu verkefnisins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert