Það kannast víst allir við hið magnaða gengi sem Kardashian-Jenner-fjölskyldan er, en þau hafa yfirtekið/tröllriðið sviðsljósið/inu síðustu 10 ár sem frægasta fjölskylda heims. Sú sem er hvað best þekkt er Kim Kardashian, en hún hefur verið á sjónarsviðinu lengst allra systranna. Raunveruleikastjarnan segir frægðina vera mjög átakanlega á köflum.
Kim á þrjú börn með eiginmanni sínum, listmanninum heimsfræga Kanye West. Það eru North (f. 2013), Saint (f. 2015) og Chicago (f. 2018). Þrátt fyrir að foreldrar barnanna séu með frægustu einstaklingum heims, vill Kim meina að börnin hennar hafi ekki hugmynd um að þau séu þekkt. „Þegar ég er heima við, þá er ég ekki þannig séð þekkt. Börnin mín vita ekkert um þennan hasar.“
Spurð um frægðina segist Kim ekki taka eftir henni þegar hún er innan heimilisins og að systkinin séu sjálfum sér samkvæm þrátt fyrir allt saman: „Við tölum mikið um þetta, fjölskyldan, hversu brjálað líf okkar hefur verið síðustu 10 ár. Við erum svo þakklát og kunnum vel að meta þessa gæfu. En að sama skapi höldum við áfram að vera við sjálf.“
A post shared by Kim Kardashian West (@kimkardashian) on May 13, 2018 at 2:35pm PDT
Heimild: Mummypages