Ösp Ásgeirsdóttir vann í Gung Ho-leik Fjölskyldunnar á mbl.is

Ösp Ásgeirsdóttir ásamt börnunum sínum þremur en hún vann sex …
Ösp Ásgeirsdóttir ásamt börnunum sínum þremur en hún vann sex miða í Gung Ho-hlaupið nk. laugardag. Haraldur Jónasson

Fjölskyldan á mbl.is er í samstarfi við skipuleggjendur Gung Ho hlaupsins sem fram fer laugardaginn 28. júlí þar sem keppendur þurfa að fara yfir 10 uppblásnar sturlaðar risahindranir.

Af  því tilefni var blásið í leik á Facebook-síðu Fjölskyldunnar á mbl.is þar sem fólki gafst kostur á að vinna sex miða í hlaupinu. 
Nú er búið að draga en það var gert eins og áður með aðstoð vefsíðunnar Random.org sem valdi vinningshafa af þeim fjölda sem tók þátt. Upp kom talan 87 og hún tengdist nafni Aspar Ásgeirsdóttur.

Það var því kampakát Ösp sem mætti í Hádegismóa í gær ásamt börnunum sínum þremur sem ætla að hoppa, skoppa og hlaupa í Gung Ho-hlaupinu nk. laugardag.

Til hamingju Ösp og fjölskylda!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert