Hurð skall nærri hælum á barnaheimili í Grikklandi

Frá barnaheimili SOS barnaþorpanna í Paneli í Grikklandi.
Frá barnaheimili SOS barnaþorpanna í Paneli í Grikklandi. Ljósmynd/Aðsend

Hurð skall nærri hælum nýlega á bráðabirgðaheimili fyrir börn undir 5 ára aldri í bænum Peneli, norður af Aþenu í Grikklandi, í vikunni þar sem skógareldar loguðu. Eldur nálgaðist húsið hratt en þegar verið var að undirbúa rýmingu hússins, sem í voru 17 börn, breyttist sterk vindáttin og börnin voru hólpin. Eins og kunnugt er létust 80 manns í eldunum í Grikklandi, ekki langt frá Paneli.

Bráðabirgðaheimilið fyrir börnin er rekið af SOS barnaþorpunum sem hafa lagt fram aðstoð við hjálparstarf í bæjunum Mati, Rafina og Kineta. Fjögur SOS barnaþorp eru í Grikklandi, þar af eitt í Aþenu, og í þeim eru allir heilir á húfi. Samtökin hafa í samstarfi við heilbrigðisráðnuneyti Grikklands lagt fram aðstoð sem fólgin er í starfi félagsráðgjafa, sálfræðinga og barnasálfræðinga. SOS barnaþorpin eiga einnig í viðræðum við ráðuneytið um stuðning við slösuð börn og fjölskyldur sem hafa misst heimili sín í skógareldunum.

SOS barnaþorpin á Íslandi styrktu á síðasta ári ungbarnaheimili SOS barnaþorpanna á þessu svæði um 20.000 evrur. Þar dvelja börn og ungabörn sem eru þolendur misnotkunar og annars ofbeldis. Á heimilinu fá þau alla mögulega faglega aðstoð og eru tilraunir einnig gerðar til að koma á viðunandi aðstæðum hjá foreldrum þeirra svo fjölskyldan geti sameinast á ný.

Heimild: SOS barnaþorp

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert