Minnstu kisturnar eru þyngstar að bera

Ljósmynd/Thinkstockphotos

Inga Hrönn Kristjánsdóttir skrifaði nýlega einlægan pistil á vefsíðu sína Mamacita.is þar sem hún lýsir þeirri sáru sorg að missa barn eftir meðgöngu sem ekki varð nógu löng til að barnið gæti lifað en hún missti litla dóttur sína eftir 21 viku meðgöngu. Hún fékk nafnið Kristíana Líf og var andvana fædd 22. maí síðastliðin. Ástæða þess að Kristíana litla Líf fæddist svo snemma er sú að Inga Hrönn fékk sýkingu í legið en slík sýking er bæði sjaldgæf og framkallar nánast alltaf fæðingu þegar hún á sér stað.

Síðustu vikur og mánuðir hafa skiljanlega verið Ingu Hrönn og eiginmanni hennar afar erfiðir og segist hún hafa tekið eitt skref í einu til að þrauka. En það var svo sem ekki annað í boði því fyrir á Inga Hrönn þrjú börn á aldrinum eins til fjögurra ára. Það er því mikið að gera á stóru heimili og ekki alltaf tími til syrgja sem þó er nauðsynlegt eftir svona áfall.

Á bloggíðu sína skrifaði Inga Hrönn:

„Þú komst og fórst á augnabliki, þú fékkst aldrei tækifæri til þess að lifa. Ég mun aldrei heyra þig gráta, hlæja eða sjá þig brosa. Mun ekki geta horft á þig vaxa og dafna. Þú lifðir í 21 viku, þú varst hér, þú varst til. Orð geta ekki lýst tilfinningunni þegar ég missti þig,“ segir Inga Hrönn.

Ekkert verður eins eftir svona áfall

„Þú varst heilbrigð, fullkomin í alla staða, það var ég, líkami minn sem var veikur. Það var annaðhvort að við færum báðar eða bara þú, hvorugt færir mér þig. Ég hefði dáið fyrir þig ef það hefði þýtt að þú myndir lifa. Og að lifa án þín er erfitt en ég verð að vera sterk því systkini þín þurfa á mér að halda, þurfa á okkur að halda. Sumir segja að lífið haldi áfram, sem það gerir en það er ekki eins, ekkert er eins. Það er eitthvað sem brotnar inni í manni. Ætli við lærum ekki að lifa með þessu?“

Ljósmynd/Aðsend

Þetta er enn allt svo óraunverulegt, fæðingin, tíminn með þér á spítalanum og jarðarförin. Elsku litla líf, eins og ljósmóðirin sagði sem tók á móti þér, ekki vitandi það að við vorum löngu búin að velja nafn á þig. Kristíana Líf, fædd og dáin 22. maí 2018. Ég vil að þú vitir hversu mikið elskuð þú ert og verður alltaf og að þér verður aldrei gleymt, aldrei!

Ég var orðin svo spennt að hitta þig, fá að fara með þig heim en í staðinn fór ég tómhent heim. Ég sá hinar mömmurnar, með nýfæddu börnin sín.“

Hún segist hafa séð mann frammi á gangi sem sat með nýfædda barnið sitt, svo glaður og ástfanginn. Hún segist hafa talaði við hann og án þess að vita af hverju hafi hún í lok spjallsins óskað honum til hamingju. Hann horfði á hana brosandi og sagði: „Takk sömuleiðis.“ Á þeirri stundu langaði hana að segja að barnið hennar væri dáið en í staðinn brosti hún og sagði lágt: „Takk.“

„Því hver er ég að hella minni sorg yfir á hann, yfir á einhvern annan sem var ekki að upplifa það sama. Á leiðinni á stofuna mína sá ég inn til konu sem var með ömmuna og afann í heimsókn, amman hélt á barninu brosandi og allir aðrir líka. Þetta voru bara nokkrar sekúndur en leið eins og heil eilíf, þegar ég kom að hurðinni, stoppaði ég andartak áður en ég tók í hurðarhúninn og opnaði. Mig langaði ekki að fara inn, því ég vissi að þarna inni væri látið barn mitt og maki og öll sorgin og reiðin. Ég dró djúpt inn andann og opnaði og um leið og ég steig inn brotnaði ég niður og grét. Maðurinn minn spurði hvað hefði gerst og ég sagði honum það og hann sagði ekki neitt, heldur tók hann bara utan um mig.“

Litli engillinn hennar Ingu Hrannar var jarðsettur hjá langafa hennar 25. maí 2018 . „Þetta er erfiðasta jarðarförin sem að ég hef farið í enda eru minnstu kisturnar þær þyngstu að bera. Ég elska þig og sakna þín.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert