Plastlausa fjölskyldan á Eskifirði

Eva Bryngeirsdóttir ásamt syni sínum Krumma Rafni Ingólfssyni. Hann er …
Eva Bryngeirsdóttir ásamt syni sínum Krumma Rafni Ingólfssyni. Hann er stoltur eigandi Endurvinnsluhvolpsins Rikka úr Hvolpasveitinni hvers mottó er: Engu skal farga, öllu skal bjarga: Eva segir að svona hlutir hjálpi heimikið til við að virkja börn í umhverfisvernd.

Á Eskifirði búa hjón með tvo unga syni sem ætla að taka þátt í Plastlausum september og verða Plastlausa fjölskyldan á mbl.is. Þau eru nú þegar dugleg að flokka og plokka en telja sig geta gert enn betur og munu deila myndum af plastafrekum sínum á Instagram með myllumerkinu #PlastlausaFjölskyldan. Fjölskyldan á mbl.is ætlar að fylgjast með.

Í lok ágúst sendi Fjölskyldan á mbl.is út skilaboð um að verið væri að leita að fjölskyldu til að taka þátt í Plastlausum september. Það eina sem farið var fram á var að fjölskyldan sem yrði fyrir valinu vildi minnka notkun sína á einnota plasti og bæta umhverfisvernd sína almennt í september, og vonandi til frambúðar. Einnig var lögð áhersla á að fjölskyldan sem tæki þátt hefði svigrúm til að bæta sig.

Fjölmargar fjölskyldur höfðu samband og vildu taka þátt. Fyrir valinu varð ung fjölskylda, hjón með tvo unga syni sem búa tímabundið heima hjá foreldrum föðurins. Þrjár kynslóðir undir sama þaki sem búa þröngt og í sátt meðan unga fjölskyldan bíður eftir að framtíðarhúsnæði hennar verði fullklárað.

Feðgarnir Ingólfur Júlíus Pétursson og Úlfur Örn Ingólfsson en sá …
Feðgarnir Ingólfur Júlíus Pétursson og Úlfur Örn Ingólfsson en sá fyrrnefndi hefur verið iðinn við að plokka á Eskifirði og nágrenni löngu áður en það varð vinsæl iðja. Líklegt má telja að sá síðarnefndi muni taka við keflinu síðar af föður sínum. Ljósmynd/Aðsend

Þetta eru þau Eva Bryngeirsdóttir og maðurinn hennar Ingólfur Júlíus Pétursson sem eiga synina Krumma Rafn Ingólfsson þriggja ára og Úlf Örn níu mánaða. Eva starfar við vörustjórnun hjá fyrirtækinu Brammer sem þjónustar álverið á Reyðarfirði en Ingólfur er vélvirki hjá Launafli, sem einnig starfar fyrir álverið. „Tengdó“, eins og Eva kallar foreldra mannsins hennar þar sem þau búa, eru þau Inga Dís Ingólfsdóttir, sem starfar í Landsbankanum á Reyðarfirði, og Pétur Sigurðsson, vélvirkjameistari hjá Alcoa.

Eva segir að hún sé alveg komin þokkalega á veg með að flokka en viðurkennir að hafa orðið svolítið hissa á metnaði tengdaforeldra sinna þegar kom að því að flokka rusl. Til dæmis aðskilji þau álþynnur frá plasti á lyfja- og vítamínþynnum og skoli alltaf jógúrt og skyr samviskusamlega og taki hreina álþynnuna frá. Enginn afsláttur gefinn á smáatriðunum! Þannig að þó að hún og Ingólfur hafi talið sig vera ágætlega á veg komin með flokkun hafi þau lært heilmikið á því að búa með foreldrum Ingólfs. Þau starfa bæði í tengslum við álverið og þar er strangt eftirlit með flokkun sem einnig hefur kennt þeim heilmikið.

-Nú eruð þið greinilega að hugsa um umhverfisvernd og minni plastnotkun nú þegar. En hvernig getið þið gert enn betur i september?

„Við getum nú alltaf bætt okkur í að muna eftir margnota plastpokum. Það þýðir lítið að eiga 20-30 margnota poka, gleyma þeim alltaf heima og kaupa plastpoka! Svo verð ég að viðurkenna að við höfum notað of mikið af plaströrum, en við búum ofttil þeytinga hér heima og Krummi litli er hrifinn af þeim en vill alltaf rör. Ég hef frétt að það er hægt að kaupa margnota málmrör og einnota papparör, þarf að skoða það allt saman betur. Ég er líka smá í vandræðum í búðinni því ég hef ekki fundið neitt annað en plast til að halda ávöxtum og grænmeti saman en ég get kannski fundið út úr því. Svo er ég hætt að drekka gos, það sparast nú heilmikið einnota plast á því. Reyndar vil ég taka fram að ég hef alltaf notað flöskurnar undan gosi oft, þannig að þær hafa ekkert verið einnota. Maðurinn minn er ekki alveg til í að hætta í gosinu en kaupir frekar dósir en plast. Þannig að þetta er svona það sem ég sé fyrir mér í fljótu bragði.“

Ungir plokkarar á Eskifirði
Ungir plokkarar á Eskifirði Ljósmynd/Aðsend

Hefur hreinsað marga pallfarma af plasti úr fjörunni á Eskifirði

- Plastlaus september snýst ekki bara um að nota minna plast heldur líka hreinsa upp plast í náttúrunni og plokka, sem góðu heilli er hreinlega orðið tískufyrirbrigði. Eruð þið til dæmis að plokka?

 „Heldur betur. Það var maðurinn minn sem fann upp plokkið löngu áður en það varð vinsælt. Eða svo segir hann! Það er alla vega staðreynd að hann hefur eytt mörgum klukkutímum í að henda plastúrgangi úr fjörunni hér á Eskifirði og í nágrenni upp á pallbílinn okkar og koma úrganginum flokkun. Algerlega óskipulagt og án hvatningar.“

-Hvað með Krumma litla, er hann áhugasamur um flokkun og þess háttar?

Hann er allavega sérlega áhugasamur um rusl og kann aðeins að flokka. Vill mjög gjarnan hjálpa okkur með að henda rusli og þess háttar. Hann er mikill áhugamaður um Hvolpasveitina eins og flestir jafnaldrar hans og á eitt leikfang úr þessari seríu, endurvinnsluhvolpinn Rikka, en hans mottó er: Engu skal farga, öllu skal bjarga! Þannig að þar er góður, kannski ekki liðsmaður í verkefninu, en liðshvolpur kannski? Svona hlutir hjálpa foreldrum heilmikið að fræða börnin um endurvinnslu og umhverfisvernd.

Feðgarnir Ingólfur og Krummi. Eskfirðingar eru í mikilli nánd við …
Feðgarnir Ingólfur og Krummi. Eskfirðingar eru í mikilli nánd við náttúruna og því stingur mengun, ekki síst plastmengun í sjó, mikið í stúf við kynngimagnað umhverfið. Ljósmynd/Aðsend

Plastmengunin stingur mjög í stúf í náttúrunni

-Hvað hvatti ykkur til að taka þátt í Plastlausum september og verða Plastlausa fjölskyldan?

Við búum náttúrulega hérna úti í náttúrunni og þegar við sjáum plast og annað rusl á víðavangi stingur það mjög í stúf við umhverfið. Svo höfum við eins og allir aðrir séð myndbönd og fréttir af gríðarlegri plastmengun í hafinu og höfum áhyggjur af því eins og aðrir, ekki síst aðrir foreldrar. Þó að við flokkum á fullu sjáum við líka hvað við, sem ein dæmigerð íslensk fjölskylda, erum að skila af okkur gríðarlegu magni af rusli, þó svo að við flokkum það. Þannig að það skiptir bara mjög miklu máli bæði að flokka en ekki síður að skipuleggja flokkunina þannig að hún sé sérlega aðgengileg í dagsins önn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert