„Rúrik Gíslason, landsliðsmaður í fótbolta, er nýr velgjörðarsendiherra SOS barnaþorpanna á Íslandi og skrifaði hann undir samning þess efnis í dag. Með því vill Rúrik leggja sitt af mörkum við að vekja athygli á starfi samtakanna sem útvega munaðarlausum og yfirgefnum börnum heimili og fjölskyldu,” segir í tilkynningu frá SOS barnaþorpunum á Íslandi.
Rúrik er þrítugur og á að baki 50 A-landsleiki í fótbolta fyrir Ísland. Fyrir utan að vera frækin fótboltakappi er hann ein stærsta samfélagsmiðlastjarna landsins en hann er með 1,2 milljónir fylgjenda á Instagram. Rúrik slæst í hóp með fríðu föruneyti þriggja annarra velgjörðarsendiherra SOS barnaþorpanna á Íslandi en fyrir í því teymi eru forsetafrúin Eliza Reid, söngkonan og fasteignasalinn Hera Björk Þórhallsdóttir og ævintýrakonan Vilborg Arna Gissurardóttir.
„Ég hlakka til að taka þátt í þessu frábæra starfi hjá SOS barnaþorpunum og vekja athygli á samtökunum. Það er mér mikill heiður vera kominn í þetta samstarf,“ segir Rúrik.
„Rúrik hefur áður látið sig góðgerðarmálefni varða og eftir að við leituðum til hans sýndi hann mikinn og einlægan áhuga á samstarfi við okkur. Það er okkur mikið gleðiefni að Rúrik hafi þegið boð okkar um að gerast SOS-sendiherra,“ segir Hans Steinar Bjarnason, upplýsingafulltrúi SOS barnaþorpanna.
SOS barnaþorpin eru barnahjálparsamtök sem reka 572 barnaþorp í 126 löndum. Í þeim eru um 90 þúsund börn sem fá öllum sínum grunnþörfum mætt og standa samtökin einnig fyrir fjölda annarra verkefna sem hjálpa sárafátækum barnafjölskyldum í nágrenni barnaþorpanna. “