Hvers vegna ættir þú að skrá barnið þitt í sund?

mbl.is/ThinkstockPhotos

„Nú þegar skólar fara að hefjast á ný þarf að huga að því hvað er gott fyrir börnin okkar. Við vitum öll að svefn, mataræði og hreyfing eru mikilvægir þættir í góðum dögum í lífi okkar og við viljum að sjálfsögðu að börnum okkar líði vel rétt eins og okkur,“ segir Guðmundur Hafþórsson, yfirþjálfari Sundfélagsins Ægis. Hér gefur hann fjórar góðar ástæður fyrir því hvers vegna barnið þitt ætti að æfa sund:

1. Undirbúningur fyrir lífið

Börnin hefja skólagöngu sína á milli 5 og 6 ára. Þessi fyrstu tíu ár í skólagöngu barnsins er krafa að börnin fái tvo tíma í íþróttum á viku og 1 tíma í sundkennslu. Þessu er svo mismunandi háttað eftir skólum og bæjarfélögum. Því miður er það þannig að oft koma börnin nokkuð illa synd eftir skólagöngu enda er lítill tími fyrir kennarana til að virkilega kenna börnunum. 40 mínútna tími verður í mörgum tilfellum aldrei nema rétt um 10-15 mínútna tími sökum þess að börnum er hleypt seint úr tíma, það þarf að fara í sturtu og koma sér út og svo þarf að vera kominn í næsta tíma á réttum tíma þannig að kennari þarf að hleypa upp úr lauginni 10-15 mínútum áður en tíma lýkur. Einnig eru margir skólar með lotukerfi og þá fara börnin í sund 2-3 sinnum í viku í 6 vikur og svo er það bara búið með sundið yfir skólaárið. Þegar því er ekki haldið við þá byrjar barnið oft á tíðum á sama stað að ári. Með því að skrá barnið þitt í sund hjá félagi tryggir þú því örugga kennslu, hreyfingu sem fylgir því allt lífið enda hægt að synda alla ævi. Öryggi í vatni þannig að þægilegra er til dæmis að fara í sumarferðir til útlanda. Ef barn/fullorðinn dettur útbyrðis af báti/skipi eru meiri líkur á að viðkomandi geti bjargað sér ef sundkunnátta er í lagi.

2. Hreyfing fyrir ævina

Sund er íþrótt sem hægt er að stunda alla ævi. Hreyfing í vatni er mjúk hreyfing og hreyfing þar sem líkamanum líður einna best. Að stunda sund til heilsubótar hefur áhrif á allan líkamann enda verið að vinna með nánast alla vöðva líkamans. Þetta er fullkomin heilsurækt þar sem ekki þarf á dýrum búnaði að halda og þú getur brennt um 500 kcal á klukkustundar rólegu sundi og auðvitað er hægt að bæta í með meiri ákefð.

3. Eykur liðleika

Við erum mikið á hreyfingu og börnin þá sérstaklega, mikið um hlaup, hopp og skopp og álag á bein og liðamót. Sund er mjúk hreyfing og í laugum landsins þar sem hitastig er 27-30 gráður þá ná vöðvarnir góðri slökun og hjálpar sundið til við að teygja á mikilvægum vöðvum líkamans.

4. Bætir líkamsstöðuna

Við vitum það öll að börnin rétt eins og við hin sitjum of mikið, í skólastofum og svo oft á tíðum eru ófáir tímar sem fara í það að vera fyrir framan tölvuna eða í símanum. Eins og áður segir er sund mjúk hreyfing sem styrkir liðamót og réttir úr hryggsúlunni og er einhver besta hreyfingin til að fyrirbyggja bakvandamál. „Hversu oft sagði mamma þín „réttu úr þér“ í æsku“?

mbl.is/ThinkstockPhotos
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert