Richard Gere á von á barni 69 ára

Richard Gere á von á sínu öðru barni.
Richard Gere á von á sínu öðru barni. AFP

Leikarinn Richard Gere á von á sínu fyrsta barni með eiginkonu sinni Alejöndru Silva. Hjónin giftu sig í apríl en Gere er 69 ára á meðan Silva er 35 ára. Er þetta annað barn þeirra beggja en bæði eiga þau syni úr fyrri hjónaböndum. 

Gere er fylgj­andi Dalai Lama og yf­ir­lýst­ur búdd­isti og staðfesti Silva að hún ætti von á sér með því að deila mynd af sjálfum Dalai Lama blessa væntanlegan erfingja. Silva skrifar við myndina að þau hafi ekki getað greint frá þessu fyrr en þau væru búin að segja Dalai Lama frá.

Dalai Lama og Richard Gere á fyrirlestri í Hollandi um …
Dalai Lama og Richard Gere á fyrirlestri í Hollandi um helgina. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert