Börnin elska Hank

Hank hélt upp á 6 mánaða afmæli sitt með pompi …
Hank hélt upp á 6 mánaða afmæli sitt með pompi og prakt. Hann hefur örugglega fengið sér sundsprett og ís. Ljósmynd/skjáskot Instagram

Ef þig vantar sætan lítinn vin sem er ótrúlega fyndinn, hlýr, forvitinn og sniðugur – þá er Hank málið!

Hank er lítill grís sem hefur fengið Instagram-síðu undir uppátækin sín. Hank elskar að kúra. Honum finnst gaman að kynnast nýju fólki, klæða sig upp á og smakka nýjan mat. 

Það er skemmtileg samvera að skoða Hank með börnunum. Hank býr í húsi með fjölskyldunni sinni í New Orleans. Hann fer reglulega í bað. Leikur sér í útisundlauginni og hleypur um á parketinu eins og hann sé á háum hælum.

Hank elskar að borða. Hann borðar allt á milli himins og jarðar. Reyndar borðar hann svo mikið að hann er nánast að verða óþekkjanlegur miðað við hvernig hann var fyrir stuttu síðan, lítill og sætur. 

Hank getur kennt börnunum ýmislegt. Hann kann vel að meta að láta tala fallega til sín. Það hressir hann við að taka sundsprett á morgnana. Hank er frábær grís sem á svo sannarlega erindi til þeirra sem eru hrifin af dýrum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert