Æðisleg barnarúm hjá stjörnunum

Knattspyrnumaðurinn Ronaldo á þrjú börn á sama árinu.
Knattspyrnumaðurinn Ronaldo á þrjú börn á sama árinu. Skjáskot/Instagram

Ef það er eitthvað sem skiptir máli í barnaherbergjum þá er það barnarúm. Barnarúm geta verið jafnmismunandi og þau mörg eins og fólk þekkir. Börn stjarnanna eiga skemmtileg og fjölbreytt rúm eins og kemur fram á vef Hello

Cristiano Ronaldo og Georgina Rodríguez 

Knattspyrnumaðurinn er með þrjú börn á sama árinu og því komu þau tveimur hvítum rimlarúmum og einni vöggu fyrir  hlið við hlið inni í barnaherberginu. Rimlarúmin eru með skiptiborði á endanum. 

Herbergi þriggja ungabarna.
Herbergi þriggja ungabarna. skjáskot/Instagram

John Legend og Chrissy Tiegen

Þegar eldra barn þeirra fæddist árið 2016 hjálpuðu hjónin Kanye West og Kim Kardashian við að innrétta barnaherbergið. Eins og sjá má á myndinni voru brúnir og mjúkir tónar í aðalhlutverkum. 

Kanye West og North West sofnuðu í herberginu.
Kanye West og North West sofnuðu í herberginu. skjáskot/Instagram
Chrissy Teigen og John Legend eiga nú tvö börn.
Chrissy Teigen og John Legend eiga nú tvö börn. AFP

Kourtney Kardashian

Raunveruleikastjarnan á þrjú börn. Það er stjörnustríðsþema í herbergi elsta barns hennar, Masons. Auk þess er gistipláss fyrir alla fjölskylduna í kojunum sem eru í herberginu. Miðjubarn hennar, dóttirin Penelope, er hins vegar með heilt hjónarúm í sínu herbergi. 

Í herbergi sonar Kourtney Kardashian er pláss fyrir alla.
Í herbergi sonar Kourtney Kardashian er pláss fyrir alla. Ljósmynd/Kourtney Kardashian
Herbergi dóttur Kourtney Kardshian.
Herbergi dóttur Kourtney Kardshian. Ljósmynd/Kourtney Kardashian
Kourtney Kardashian á þrjú börn.
Kourtney Kardashian á þrjú börn. Getty Images






mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert