Hættu við vegna E.T.

Zara og Mike Tindall.
Zara og Mike Tindall. AFP

Zara Tindall, næstelsta barnabarn Elísabetar Englandsdrottningar, eignaðist sitt annað barn í sumar með eiginmanni sínum Mike Tindall. Hjónin skýrðu stúlkuna Lenu Elizabeth Tindall en voru upphaflega með annað nafn í huga. 

Á vef OK kemur fram að Zara hafi greint frá því að þau hjónin hafi verið að hugsa um nafnið Elena. Skammstafir barnsins hefðu þá verið E.T. og það vildi Zara ekki svo Lena varð að duga. 

Fyrir eiga þau Zara og Mike Tindall dótturina Miu Grace en í desember 2016 misstu þau fimm mánaða gamalt fóstur. Zara segist ekki hafa getað talað um það í byrjun en komst á þann stað að geta talað um og tekist á við atvikið. „Það er engin leið að láta það hljóma betur en það var,“ sagði Zara og segir það hafa verið hræðilegt. 

E.T. með leikstjóra sínum, Steven Spielberg.
E.T. með leikstjóra sínum, Steven Spielberg. Photononstop
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert