Elskar skiptibakpokann sinn

Jessica Alba á þrjú börn.
Jessica Alba á þrjú börn. AFP

Hin hefðbundna skiptitaska er hliðartaska en Jessica Alba notar skiptitösku sem er bakpoki. Leikkonan og athafnakonan eignaðist sitt þriðja barn með eiginmanni sínum Cash Warren í lok síðasta árs. 

Alba sagði frá dagvenjum sínum á vef People en þar segist hún elska skiptitöskuna sem er í bakpokaformi þar sem hún henti bæði henni og eiginmanni hennar. Taskan er frá fyrirtækinu Honest en Alba er stofnandi fyrirtækisins. 

Skiptitöskur sem bakpokar eru sniðugir.
Skiptitöskur sem bakpokar eru sniðugir.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert