Leikkonan Kate Hudson eignaðist dóttur á þriðjudaginn með kærasta sínum Danny Fujikawa. Hudson sem er 39 ára greindi frá komu barnsins á Instagram en stúlkan fékk nafnið Rani Rose Hudson Fujikawa.
Hudson upplýsti að nafnið Rani, sem er borið fram eins og Ronnie, væri í höfuðið á föður kærasta hennar og afa stúlkunnar en hann hét Ron Fujikawa. „Ron var yndislegur maður sem við söknum öll mjög mikið. Að nefna eftir honum er heiður,“ skrifaði Hudson.
Rani er ekki fyrsta barn Hudson en hún á tvo stráka, synina Ryder Robinson og Bingham Hawn Bellamy.