Leggja metnað í Instagram-myndir

Ljósmyndir af sofandi ungabörnum í fallegum búningum eru vinsælar um …
Ljósmyndir af sofandi ungabörnum í fallegum búningum eru vinsælar um þessar mundir. Ljósmynd/skjáskot Instagram

Margir foreldrar fara með börnin sín í myndatöku á fyrstu mánuðum þeirra og hafa slíkar myndatökur verið að þróast á skemmtilegan hátt að undanförnu.

Ekkert lát virðist vera á uppstillingu í slíkum myndatökum. Börnin eru gjarnan sofandi í myndatökunum, en uppáklædd eða umkringd fallegum skrautmunum og litum. 

Eins og sést á þessum myndum er ekkert til sparað til að láta börnin líta sem best út á netinu. 






mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert