Einstök börn sáu Ronju ræningadóttur

Um helgina mætti fjöldi barna og foreldra í Þjóðleikhúsið á fjölskyldusöngleikinn frábæra um Ronju ræningjadóttur. Á meðal þeirra sem skemmtu sér konunglega var fríður hópur frá Einstökum börnum.

Að sýningu lokinni hittu þau leikara sýningarinnar. Það fór vel á með þeim og gleðin skein úr hverju andliti eins og sést á meðfylgjandi myndum. Einstök börn er stuðningsfélag barna og ungmenna með sjaldgæfa, jafnvel ógreinda sjúkdóma eða skerðingar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert