Hvar er best að setja endurskinsmerkin?

Það skiptir miklu máli að nota endurskinsmerki rétt.
Það skiptir miklu máli að nota endurskinsmerki rétt. mbl.is/ThinkstockPhotos

Nú er dimmasti tími ársins að fara í hönd og þess vegna skiptir miklu máli að nota endurskinsmerki. En hvernig á að nota þau? Í myrkri sjást gangandi vegfarendur illa þrátt fyrir götulýsingu og ökuljós bifreiða og er notkun endurskinsmerkja þess vegna nauðsynleg. 

Á vef Samgöngustofu segir að endurskinsmerki eigi að vera fremst á ermum, hangandi meðfram hliðum og á skóm eða neðarlega á buxnaskálmum. 

„Þá virka endurskinsmerkin eins og blikkljós þegar ljós skín á þau. Því fyrr og betur sem ökumenn greina gangandi vegfarendur þeim mun meira er öryggi þeirra sem gangandi eru. Það er staðreynd að ökumenn sjá gangandi vegfarendur með endurskinsmerki fimm sinnum fyrr en ella og því getur notkun endurskinsmerkja skilið milli lífs og dauða,“ segir á vefnum. 

Allir ættu að finna endurskin við hæfi en til eru margar gerðir og stærðir eins og endurskinsvesti, límmerki, barmmerki eða hangandi endurskinsmerki. Á mörgum skólatöskum eru endurskinsmerki og eins er gott að líma endurskin á barnavagna, sleða, bakpoka og skíðastafi. 

Fullorðnir eiga að sjálfsögðu að vera fyrirmyndir barna og vera með endurskinsmerki á sínum flíkum. Nauðsynlegt er fyrir skokkara að vera í endurskinsvestum eða með gott endurskin á æfingafatnaði þegar æft er utandyra.

Endurskinsmerki er einnig hægt að líma á hunda- og kattaólar og sjálfsagt er að bregða endurskinsborðum um fætur hestsins þegar farið er í reiðtúr.

Gæði endurskinsmerkja

Miklu máli skiptir að skoða endurskinsmerkin áður en þau eru keypt en þau þurfa að vera með CE-merkingu með nafni framleiðanda (eða heiti vörunnar). Enn fremur þarf númer staðalsins að koma fram á merkinu (EN 13356) og að lokum eiga að fylgja með því notkunarleiðbeiningar. Markaðseftirlit með endurskinsmerkjum er í höndum Neytendastofu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert