Bannar klassískar Disney-myndir

Keira Knightley er ströng móðir.
Keira Knightley er ströng móðir. AFP

Leikkonan Keira Knightley á þriggja ára dóttur sem fær ekki að horfa á allar teiknimyndir sem ætlaðar eru börnum. Leikkonan greindi frá því í þætti Ellenar DeGeneres að Öskubuska og Litla hafmeyjan væru bannaðar á heimilinu. 

Knightley vill ekki meina að það sé gott að alast upp við sögu af konu sem bíður eftir að ríkur maður kemur og bjargar henni. Litla hafmeyjan er svo bönnuð þar sem hafmeyjan gefi rödd sína fyrir prins. Henni finnst ekki gaman að banna myndina þar sem lögin eru frábær en skilaboðin eru ekki góð. 



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert