Ný íslensk útvarpsstöð í loftið: Íslenskum tónum fagnað

Siggi Hlö og Valli sport létu sig ekki vanta á …
Siggi Hlö og Valli sport létu sig ekki vanta á opnunina enda eru þeir meðal eigenda stöðvarinnar. Morgunblaðið/Sverrir

Íslenska stöðin, FM 91,9, er komin í loftið og var opnunarteiti haldið af því tilefni um helgina. Margir mættu á staðinn til að fagna en Íslenska stöðin stendur undir nafni og spilar eingöngu íslenska tónlist.

Valgeir Magnússon og Sigurður Hlöðversson, eða Valli sport og Siggi Hlö, voru á meðal þeirra sem fögnuðu tilkomu Íslensku stöðvarinnar. Ekki ætti það að koma á óvart í ljósi þess að þeir eru með þátt á systurstöðinni, Steríó 89,5, og eru jafnframt meðal eigenda stöðvanna.

Axel Axelsson verður með morgunþætti á nýju stöðinni og einnig verður Valdís Gunnarsdóttir með þátt, að sögn Brynjars Más Valdimarssonar, útvarpsstjóra og eins eigenda.

Hann vill minna á að þetta sé "eina íslenska stöðin í heiminum" og segir stöðina í jólaskapi þessa dagana.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson