Kvikmyndin Poseidon Adventure hefur verið valin besta stórslysakvikmynd allra tíma. Kvikmyndin, sem er frá 1972, fjallar um áætlunarskip sem verður fyrir flóðöldu. Gene Hackman er í einu af aðalhlutverkum kvikmyndarinnar.
Kvikmyndin sló við Titanic og Towering Inferno í könnun 500 starfsmanna UCI kvikmyndakeðjunnar, að sögn BBC. Airport, Abyss, Independence Day og Twister náðu einnig inn á listann yfir bestu stórslysakvikmyndir sögunnar. Könnunin var gerð í tilefni frumsýningar á Day After Tomorrow, sem fjallar um afleiðingar gróðurhúsaáhrifa.