Talnaröðin 01:02:03, 04.05.06 mun myndast í nótt

Landsmenn munu líklega flestir sofa hina merkilegu tímaröð af sér.
Landsmenn munu líklega flestir sofa hina merkilegu tímaröð af sér. Kristinn

Sú merkilega talnaröð mun myndast í eina sekúndu í fyrramálið að klukka og dagsetning munu mynda saman tölurnar 1-6 í réttri röð, nánar tiltekið kl. 1:02 og þremur sekúndum betur á fjórða degi fimmta mánaðar 2006. Þannig myndast tímaröðin 01:02:03, 04.05.06 ef klukka og dagsetning eru lögð saman. Þetta er kannski ekki merkilegt að neinu leyti nema fagurfræðilegu og þeim sem gífurlegan áhuga hafa á tölum. Það sem þó má þykja merkilegt er að þeir, sem nú eru á lífi, munu aðeins upplifa þetta einu sinni um ævina, þar sem tímaröðin mun næst myndast 4. maí 2106.

Í Bandaríkjunum hefur slík tímaröð þegar myndast, þ.e. 5. apríl, þar sem þarlendir víxla tölunum sem eiga við dag mánaðar og mánuðinn. Tæknilega séð verður maður þó að taka sér það bessaleyfi að sleppa 20 í ártalinu 2006, en það er þó oft gert til styttingar. Sky fréttavefurinn benti á þessa merkilegu staðreynd.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson