Gisele Bundchen er launahæsta fyrirsætan samkvæmt Forbes

Gisele Bundchen.
Gisele Bundchen. Reuters

Brasilíska fyrirsætan Gisele Bundchen er efst á lista Forbes.com yfir efnuðust fyrirsætur í heimi. Fékk hún 33 milljónir dala, tæpa tvo milljarða króna, í laun síðustu tólf mánuði. Kate Moss er í öðru sæti listans og Heidi Klum er því þriðja.

Árslaun Moss námu 9 milljónum dala en Klum var með átta milljónir dala í árslaun, samkvæmt lista Forbes.

Næstar á listanum eru fyrirsæturnar Adriana Lima og Alessandra Ambrosio, sem fengu um sex milljónir dala í árslaun hvor um sig. Carolyn Murphy var með fimm milljónir dala í árslaun, Natalia Vodianova 4,5 milljónir dala og Karolina Kurkova og Daria Werbowy voru hvor um sig með 3,5 milljón dala í árslaun á síðasta ári.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson