Þyrla og tuttugu menn sóttu Spears

Yfirvöld í Los Angeles hafa varið þá ákvörðun lögregluyfirvalda í borginni að senda rúmlega tuttugu lögregluþjóna og þyrlu til að fylgja sjúkrabíl er flutti söngkonuna Britney Spears á sjúkrahús fyrr í vikunni.  Aðgerðin er sögð hafa kostað borgina um 25.000 Bandaríkjadollara. Þetta kemur fram á fréttavef Jyllands-Posten.

Undirbúningur aðgerðarinnar er sagður hafa hafist á mánudag og mun lögregla m.a hafa tekið mið af því að mikil hætta væri á því að ljósmyndarar ækju í veg fyrir sjúkrabílinn eða reyndu að komast inn á landareign Spears þegar hlið hennar yrðu opnuð. Því var götum lokað í nágrenni heimilis hennar og á þeirri leið sem sjúkrabíllinn ók.

Michel Moore aðstoðarlögreglustjóri segist sammála því að synd hafi verið að verja þetta miklum fjármunum í aðgerðina en að lögregla hafi ekki haft neitt val í stöðunni. Talsmaður neyðarmóttöku sjúkrahússins segir innlögn Spears ekki á nokkurn hátt hafa verið ólíka öðrum neyðarinnlögnum að undanskildum tvöhundruð ljósmyndurum sem eltu hana.

Britney Spears er hún var flutt á sjúkrahús í byrjun …
Britney Spears er hún var flutt á sjúkrahús í byrjun janúar. HO
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson