Stóð við fyrirheit um að deyja eignalaus

Anita Roddick.
Anita Roddick. AP

Greint hefur verið frá því að Dame Anita Roddick, stofnandi stórfyrirtækisins The Body Shop, hafi staðið við það fyrirheit sitt að gefa allar eigur sínar fyrir andlát sitt. Roddick lést í kjölfar heilablóðfalls í september á síðasta ári 64 ára gömul. Þetta kemur fram á fréttavef Sky.

Riddick lýsti því yfir árið 2005 að henni þætti fáránlegt að vera auðug við andlátið og að hún ætlaði sér að verja síðustu tuttugu árum ævi sinnar í að gefa auðæfi sín sem metin voru á a.m.k. 150 milljónir sterlingspunda. Hún var þá illa haldin af lifrarbólgu en ekki talin dauðvona.

„Ég mun gefa auðæfi mín, það er staðreynd, en þó ekki strax,” sagði hún á bloggsíðu sinni í desember árið 2005. „Ég hef alltaf sagt að ég vilji ekki deyja rík.”

Fyrir andlátið mun Riddick hafa gefið sínum nánustu peningagjafir en meginhluta eigna sinna hafði hún þó lagt í Roddick sjóðinn, sem hún stofnaði. Þá mun hún hafa lagt til hliðar peninga fyrir útför sinni og erfðasköttum.

Roddick sjóðurinn leggur áherslu á að styrkja þá sem sýna frumkvæði í baráttunni gegn alnæmi og í baráttunni fyrir mannréttindum.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant