Konunglegt brúðkaup í Bretlandi

Peter Phillips og Autumn Kelly að hjónavígslunni lokinni.
Peter Phillips og Autumn Kelly að hjónavígslunni lokinni. AP

Peter Phillips, elsta barnabarn Elísabetar Englandsdrottningar, gekk að eiga hina kanadísku Autumn Kelly í gær. Varð hann þar með fyrsta barnabarn drottningarinnar til að ganga í hjónaband. Þetta kemur fram á fréttavef BBC. 

Hjónavígslan fór fram í St George kapellunni í Windsor-kastala og voru flestir meðlimir bresku konungsfjölskyldunnar á meðal 300 brúðkaupsgesta. Brúðkaupið var þó ekki opinber viðburður en Peter hefur leitast við að halda sig frá sviðsljósinu. Þau hafa þó selt tímaritinu Hello! frásögn sína af sambandi sínu.

Hann er sonur Önnu prinsessu og fyrri eiginmanns hennar Mark Phillips en ber ekki konunglegan titil þar sem móðir hans hafnaði slíkum titlum fyrir hönd tveggja barna sinna. Peter er þó ellefti í röðinni til ríkiserfða í Bretlandi.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson