Spænskur útgefandi, Ediciones Ámbar, hefur keypt útgáfuréttinn að tveimur bóka Árna Þórarinssonar á Spáni, en um er að ræða bækurnar Tíma nornarinnar og Dauða trúðsins. Í tilkynningu frá Forlaginu kemur fram að útgefandinn hafi hreppt hnossið á bókastefnunni í Frankfurt, en hann hafi ekki linnt látum gagnvart fulltrúum Forlagsins fyrr en hann hafði fengið með sér eintak af frönskum útgáfum bóka Árna upp á hótel til að lesa. Eftir lesturinn hafi hann svo verið fljótur að setja fram tilboð í umræddar bækur.|