Kiri finnur söngvara

Andri Björn Róbertsson
Andri Björn Róbertsson mbl.is/Golli

Andri Björn Róbertsson, tvítugur söngnemi í Söngskólanum í Reykjavík hefur þegið boð frá söngkonunni Kiri Te Kanawa um að koma til Ítalíu til að stunda nám við Solti Te Kanawa Accademia di Bel Canto 2009 en það er tónlistarakademía fyrir afburðanemendur sem söngkonan hefur umsjón með. Nokkrum afburðanemendum á söng- og tónlistarsviðinu hvaðanæva úr heiminum er boðið að nema endurgjaldslaust við skólann.

Andri Björn vakti athygli Kiri Te Kanawa þegar hún hélt námskeið á vegum Söngskólans í Reykjavík í nóvember síðastliðnum fyrir nemendur skólans og aðra söngnemendur, söngkennara og söngvara sem þess óskuðu. Þar söng Andri Björn sig greinilega inn í hjarta hennar. Í desember sendi hún honum síðan boð um skólavist við tónlistarakademíuna.

„Námskeiðið sem hún hélt í Tónlistarskólanum var mjög gott og ég hafði mikið gagn af því, eins og aðrir sem þar voru, enda er Kiri Te Kanawa mikill reynslubolti,“ segir Andri Björn. „Boð hennar til mín um að koma til Ítalíu kom skemmtilega á óvart og gladdi mig mjög. Fyrst og fremst er þetta mikill heiður.“

Andri Björn hefur stundað söng- og tónlistarnám frá barnsaldri. Hann var fimm ára þegar hann byrjaði að syngja í kórum og fór í söngtíma til Ólafar Kolbrúnar Harðardóttur þegar hann var tíu ára gamall. Með árunum óx söngáhuginn jafnt og þétt og hann segist hafa stefnt að því frá fjórtán ára aldri að verða óperusöngvari. „Óperan er sérstaklega áhugavert og skemmtilegt listform,“ segir þessi ungi söngvari sem segir Bryn Terfel vera eftirlætissöngvara sinn.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant