Rautt kvikasilfur í saumavélum?

Singer saumavél af eldri gerðinni. Mjög ólíklegt þykir að hún …
Singer saumavél af eldri gerðinni. Mjög ólíklegt þykir að hún hafi að geyma rautt kvikasilfur. mbl.is

Lögreglan í Sádí-Arabíu rannsakar nú orðróm sem orðið hefur til þess að fólk kaupir gamlar Singer saumavélar dýrum dómi. Orðrómurinn er þess efnis að í saumavélunum sé að finna rautt kvikasilfur. Enn hefur hins vegar ekki verið sannað að rautt kvikasilfur sé annað en þjóðsaga.

Fólkið virðist trúa því að hægt sé að selja kvikasilfrið rauða fyrir milljónir dollara, jafnvel í minnstu skömmtum. Einnig að hægt sé að búa til kjarnorkusprengju og finna fjársjóði með því. Brotist hefur verið inn á saumastofur og saumavélum stolið auk þess sem Singer saumavélar hafa selst á alla að 50 þúsund dollara (6,4 milljónir kr.).

Einnig hafa heyrst sögur af því að fólk haldi farsímum sínum upp að saumavélunum og trúi því að með því geti það séð hvort vélarnar innihaldi rauða kvikasilfrið.

Yfirvöld gera nú hvað þau geta til að kveða niður orðróminn og komast að rótum hans.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson