Jackson jarðsunginn í dag

Michael Jackson með móður sinni Katherine.
Michael Jackson með móður sinni Katherine. Reuters

Talið er að poppstjarnan Michael Jackson, sem lést þann 25. júní verði jarðsunginn við sólarlag í dag. Er athöfnin sögð eiga að fara fram frá Holly Terrace grafhýsinu í Forest Lawn kirkjugarðinum í Hollywood klukkan sjö að staðartíma og standa í 45 mínútur. 

Fjölmiðlum og aðdáendum Jacksons verður ekki veittur aðgangur að athöfninni en talið er að söngkonan Diana Ross verði á meðal viðstaddra og að Aretha Franklin syngi. 

Dómari veitti Katherine Jackson, móður Michael, heimild til þess í gær að greiða útfararkostnað úr dánarbúi hans en talið er að miklar og dýrar varúðaráðstafanir verði gerðar við gröf hans til að koma í veg fyrir að hún verði opnuð og rænd.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson