Skilnaður kostar Tiger Woods 750 milljónir dala

Tiger Woods og Elin Nordegren
Tiger Woods og Elin Nordegren SHAUN BEST

Elin Nordegren, fyrrum eiginkona Tiger Woods fær 750 milljónir Bandaríkjadala úr skilnaði þeirra fyrir að tala ekki opinberlega um Tiger og sambandsslit þeirra.

Heimildir segja: „Elin vill verja börn sín frá kvensömu hlið föður þeirra. Tiger óttast helst að hún muni segja sögu sína eftir að hann hefur byggt upp orðspor sitt á ný sem myndi senda hann beint aftur í ræsið. Lögfræðiteymi hennar hefur staðið sig óhemju vel við að grafa upp eignir úr hjónabandinu.“

„Það kostar Tiger háar fjárhæðir til að þagga niður í fyrrverandi konu sinni en samningurinn segir til um að hún megi ekki tala um þeirra mál í viðtölum, skrifa bók eða koma fram í sjónvarpi eins lengi og hún lifir, jafnvel þó að Tiger falli frá. Elin mun skrifa undir samninginn á næstu sjö dögum.“

Hvað börnin varðar munu Tiger og Elin deila forræði. Tiger má hitta börnin helming vikunnar en hann má ekki kynna börnin fyrir konu nema að hann hyggist giftast henni.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant