Tiger Woods og Elin skilin

Bandaríski kylfingurinn Tiger Woods og eiginkona hans Elin Nordegren eru skilin. „Okkur þykir þetta leitt en hjónabandi okkar er lokið og við óskum hvort öðru alls hins besta í framtíðinni," segir í sameiginlegri yfirlýsingu þeirra sem birt er á vef kylfingsins.

Þau segja að þau hafi einbeitt sér að því þegar verið var að ganga frá skilnaðinum að hagur barnanna tveggja sem þau eiga væri í fyrirrúmi.

Woods tók sér fimm mánaða hlé frá keppni í golfi eftir að hann staðfesti að hafa ítrekað rofið hjúskaparheit sín. Eftir að í ljós kom að Woods hafði verið eiginkonu sinni ótrúr hættu margir þeirra sem hafa auglýst hjá honum, þar á meðal AT&T Gatorade, að styðja við bakið á honum. 

Í yfirlýsingu sem lögmaður þeirra sendi frá sér í dag kemur fram að þau óski eftir því að fá næði svo þau geti áttað sig á breyttum fjölskylduaðstæðum.

„Á sama tíma og við erum ekki lengur hjó þá erum við foreldrar tveggja dásamlegra barna og hamingja þeirra hefur verið og verður alltaf það sem skiptir okkur bæði mestu," segir í sameiginlegri yfirlýsingu frá þeim.

„Þegar við tókum ákvörðun um að hjónabandi okkar væri lokið þá varð það sem skipti mestu í okkar vinsamlegu viðræðum að tryggja framtíð þeirra. Næstu vikur og mánuðir verða ekki auðveldar fyrir þau."

Tiger Woods og Elin Nordegren
Tiger Woods og Elin Nordegren SHAUN BEST
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson