Vegna eldgossins í Grímsvötnum verður ekkert af komu franska rithöfundarins Michel Houellebecq til landsins í þessari viku en til stóð að hann kæmi fram í Norræna húsinu annað kvöld á Listahátíð.
Kvöldstundin átti að vera í tilefni 100 ára afmælis Alliance française. Truflanir á flugumferð urðu til þess að höfundurinn hætti við komu sína að svo stöddu og því er viðburðinum aflýst, segir í tilkynningu frá Listahátíð.