Tattóveraðri mótorhjólatöffarinn og fyrrverandi eiginmaður Söndru Bullock, Jesse James, er ekki par vinsæll hjá sinni fyrrverandi þessa dagana.
Hans fyrrverandi, Kat Von D, sem sjálf er vinsæl tattó-hetja í Bandaríkjunum, gerðist svo djörf að láta tattóvera barnamynd af James á líkama sinn enda yfir sig ástfangin.
Ekki vildi þó betur til en svo að þau hættu saman í síðustu viku og situr Von D nú eftir með sárt ennið og barnamynd af James sem varanlegan minnisvarða um sambandið sem fuðraði upp.