Andri Snær valdi Hraunteiga við Heklu

Andri Snær Magnason við Hraunteiga við Heklu. Verkið er olíumálverk …
Andri Snær Magnason við Hraunteiga við Heklu. Verkið er olíumálverk frá 1930 og var gjöf til Reykjavíkurborgar árið 1955.

Andri Snær Magnason rithöfundur valdi verkið Hraunteigar við Heklu (1930) eftir Jón Stefánsson (1881-1962) á sýningunni Flæði á Kjarvalsstöðum í dag.

Listasafn Reykjavíkur hefur leitað til þjóðþekktra einstaklinga og beðið þá að velja sér uppáhaldsverk á sýningunni  á hverjum fimmtudegi kl. 12:15, að því er segir í tilkynningu frá Listasafni Reykjavíkur.

Þau sem hafa nú þegar valið verk vikunnar eru auk Andra Jón Gnarr, Guðrún Ásmundsdóttir, Hugleikur Dagsson, Hrefna Sætran og Steinunn Sigurðardóttir. Einar Bárðarson forstöðumaður Höfuðborgarstofu velur sér uppáhaldsverk á Flæði þann 4. apríl. Alls hafa um 330 verk verið sett upp á sýningunni Flæði frá því hún opnaði 2. febrúar. Sýningin er síbreytileg og hefur tekið miklum breytingum frá opnun.  

Andri Snær Magnason sagði þetta meðal annars um verkið á Kjarvalsstöðum í dag:
 
„Atburðir síðustu daga fengu mig til að velja Hraunteiga við Heklu eftir Jón Stefánsson sem er einn af frumherjum íslenskrar myndlistar. Jón sá fegurðina í íslensku landslagi en hann benti m.a. á að það væri eins og nakinn líkami. Hann sá náttúruna í öðru ljósi en Íslendingar gerðu á fyrri hluta síðustu aldar. Jón færði ásamt Kjarval og fleiri meisturum fegurð auðnanna í myndmál. Þessir listamenn, fönguðu náttúrusýn. Sýn sem margir Íslendingar hafa nú til dags og náttúruverndarbarátta hefur snúist um síðustu ár. Mig langar að setja þetta í annað samhengi en fyrir nokkrum árum bjó Bjarni Helgason myndlistarmaður til myndskeið í tengslum við náttúruverndarbaráttu þar sem hann drekkti  myndinni Hraunteigar við Heklu táknrænt þ.e. þannig að hraunteigarnir sukku. Samsvarandi myndskeið hefur verið gert um Gálgahraunið hans Kjarvals. Myndstef var ekki sátt við þessa meðhöndlun og sendi harðort skeyti um að með því væri verið að brjóta á sæmdarrétti höfundar. Það sem er athyglisvert við þetta er að eftirmyndin er þannig varin en ekki frummyndin eða sjálf náttúran.“



mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson