Þáttaröðin seld til 120 landa

Glanni glæpur, íþróttaálfurinn og Solla stirða búa í Latabæ.
Glanni glæpur, íþróttaálfurinn og Solla stirða búa í Latabæ.

Þriðja þáttaröð af Latabæ, sem kom úr fyrr á þessu ári, hefur þegar vakið mikla lukku víða um heim og verið seld til fleiri en 120 landa. Hún hefur meðal annars verið sýnt í Bretlandi, Ástralíu, á Ítalíu, Spáni, Þýskalandi og á Íslandi.

Á næstu vikum munu lönd á borð við Kanada, Rússland og Rúmeníu hefja sýningar á þáttaröðinni og verðu hún meðal annars sýnd í opnu sjónvarpi á NBC sjónvarpsstöðinni í Bandaríkjunum þann 5. október næstkomandi.

Þriðja þáttaröðin hefur fengið góðar viðtökur þar sem hún hefur verið sýnd og hafa áhorfstölur verið mjög góðar.  „Við erum undantekningalaust að sjá nýju þættina fara langt yfir meðal áhorfstölur þeirra stöðva sem þeir eru sýndir á“ segir Hallgrímur Kristinsson, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar og kynningamála hjá Latabæ.

Tökur á fjórðu þáttaröð Latabæjar standa nú yfir í höfuðstöðvum félagsins í Garðabæ og fer hún í sýningu á næsta ári.

mbl.is

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Láttu það ekki draga þig niður, þótt hlutirnir gangi ekki akkúrat eins og þú vilt. Nú er mikið að gera hjá þér og í mörg horn að líta.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Stefan Mani
2
Skúli Sigurðsson
3
Laila Brenden
5
Anna Sundbeck Klav

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Láttu það ekki draga þig niður, þótt hlutirnir gangi ekki akkúrat eins og þú vilt. Nú er mikið að gera hjá þér og í mörg horn að líta.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Stefan Mani
2
Skúli Sigurðsson
3
Laila Brenden
5
Anna Sundbeck Klav