Ryan Gosling er á lausu - staðfest

Leikarinn Ryan Gosling.
Leikarinn Ryan Gosling. mbl.is/AFP

Leikarinn Ryan Gosling og leikkonan Eva Mendes eru hætt saman.

Samkvæmt heimildum InTouch hættu þau saman um jólin: „Þau hættu ekki saman í illu og hvorugt þeirra ætlar að flýta sér í nýtt samband,“ sagði heimildarmaður InTouch. Annar heimildarmaður Life & Style Weekly bætti við: „Þau vissu að þetta gengi ekki.“

Þau byrjuðu saman árið 2011 eftir að hafa leikið saman í kvikmyndinni The Place Beyond The Pines, en þau hafa ekki sést saman það sem af er ári.

Þrátt fyrir að þau hafi ákveðið að hætta saman í kringum jólin var sambandið ekki búið að vera gott í einhvern tíma: „Vandamálin byrjuðu í september,“ sagði heimildarmaður InTouch og bætti við: „Þau ákváðu að enda sambandið um jólin.“

Það sem gekk ekki upp á milli þeirra var að þau höfðu ekki áhuga á því sama.

„Eva Mendes elskar Hollywood, partíin og glamúrinn. Henni finnst mjög gaman að skemmta sér. En Ryan Gosling er frekar alvarleg týpa og ekki mikið fyrir þennan lífsstíl.“

Annað vandamál var að það var kominn tími á að þau færu að huga að barneignum og giftingu. „Þau vissu að það var kominn tími til að taka næsta skrefið, að gifta sig,“ sagði vinur þeirra og bætti við: „Þau voru hvorugt viss um að þau langaði til þess.“

Mendes hefur sagt frá því opinberlega að hún hafi ekki áhuga á að verða móðir.

„Ég er alls ekki að hugsa um að verða móðir. Ég get ekki ímyndað mér það. Ég er of eigingjörn,“ sagði hún eitt sinn í blaðaviðtali.

Hins vegar virtist Gosling til í að verða faðir. „Ég væri alveg til í að búa til börn. Ekki núna samt, svo að ég bý til kvikmyndir.“

Eva Mendes.
Eva Mendes. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant