Á sífellt fleiri veitingastöðum í Bandaríkjunum geta gestir notað spjaldtölvur til að panta matinn og greiða fyrir hann. Veitingamenn segja mikið hagræði að þessu fyrirkomulagi og gestir taka í sama streng.
„Allt pantanakerfið er tölvustýrt og það sama er að segja um öll eldhústækin; hvort sem það er að búa til hamborgara, steikja kjúkling, franskar kartöflur eða laukhringi,“ segir Michael Davidson, einn af eigendum Bolt Burgers í Washington.
Þar fá gestir spjaldtölvur í hendur sem þeir nota til að panta matinn, fá upplýsingar um hann, greiða fyrir hann og geta líka spilað í þeim tölvuleiki.