Sigur Rós í Game of Thrones

Sigur Rós.
Sigur Rós.

Hljómsveitin Sigur Rós flytur lag í fjórðu þáttaröð Game of Thrones. Lagið heitir The Rains of Castamere og er samið fyrir þáttinn. Á facebook-síðu hljómsveitarinnar kemur fram að lagið sé leikið í brúðkaupi í þættinum, en hann er annar þáttur þáttaraðarinnar og var sýndur í Bandaríkjunum í gærkvöldi. 

mbl.is greindi frá því á síðasta ári að hljómsveitin fengi hlutverk í fjórðu þáttaröðinni en ekki var ljóst hversu veigamikið það yrði. Hér má sjá hljómsveitarmeðlimi í gestahlutverkum í þættinum.

David Benioff og Dan Weiss, framleiðendur og handritshöfundar þáttanna, eru sagðir miklir aðdáendur Sigur Rósar. Tónlist hljómsveitarinnar fær oft að hljóma þegar þeir eru staddir hér á landi við upptökur á þáttaröðinni. 

Hér má hlýða á lagið: 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson