Ben Affleck olli henni ástarsorg

Söngkonan Jennifer Lopez.
Söngkonan Jennifer Lopez. mbl.is/AFP

Söngkonan Jennifer Lopez hefur nú viðurkennt að hafa verið í ástarsorg eftir að Ben Affleck, fyrrverandi unnusti hennar, hætti með henni nokkrum dögum áður en þau áttu að ganga í það heilaga.

Lopez skrifar um þetta tímabil í bókinni sinni True Love. Hún kveðst hafa átt erfitt uppdráttar eftir að Affleck hætti með henni árið 2004.

„Mér fannst eins og hjartað hefði verið rifið út úr líkama mínum. Ég hef upplifað sambandsslit áður en aldrei fundið fyrir slíkri ástarsorg. Þetta tók á, kannski vegna þess að þetta var svo opinbert,“ sagði Lopez í bókarkynningu í New York í gær.

Lopez hefur upplifað ýmislegt í gegnum tíðina en hún hefur verið gift þremur mönnum og skilið við þá alla. Affleck virðist þó hafa haft mest áhrif á hana.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant