Birta sömu myndina á hverjum degi

Einföld hugmynd sem svínvirkar í landann.
Einföld hugmynd sem svínvirkar í landann. Skjáskot af Facebook.com

Yfir 3.500 manns hafa nú lækað facebooksíðuna „Sama myndin af Ingvari E. Sigurðssyni á hverjum degi“.

Innihald síðunnar er nákvæmlega það sem nafnið segir til um því stjórnendur hennar hafa birt nákvæmlega sömu myndina af leikaranum Ingvari E. Sigurðssyni á hverjum einasta degi frá því 2. janúar þessa árs. 

Uppátækið hefur vakið mikla lukku þeirra sem veitt hafa síðunni velþóknun sína í formi smells á „like“-hnappinn og koma reglulega upp spurningar frá spenntum aðdáendum um hvaða mynd birtist næst. Hver mynd fær yfirleitt í kringum 500 „like“ og jafnan eru yfir 10 athugasemdir þar sem aðdáendur síðunnar velta fyrir sér breyttum hárstíl eða augnaráði.

Óljóst er hverjir standa á bak við síðuna enda birtast aðeins nauðsynlegustu upplýsingar á henni, það er sama myndin af Ingvari E. Sigurðssyni.

Hægt er að fylgjast með facebooksíðunni með því að smella hér.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson