Lily Allen stjórnlaus

Lily Allen á Glastonbury.
Lily Allen á Glastonbury. mbl.is/AFP

Hin þrítuga söngkona Lily Allen er gift Sam Cooper og saman eiga þau tvær dætur. En nú er hjónaband þeirra sagt í molum og ferill Allen á hraðri niðurleið.

Að sögn vefmiðilsins Mirror sleit Allen nýlega öll samskipti við umboðsmenn sína Scott Rodger og Henry Village. Hún hafði aðeins unnið með Rodger og Village, sem eru mjög eftirsóttir, í tæpt ár áður en upp úr sauð. Rodger hafi reynt eins og hann gat að vinna með Allen, en sagan segir að samstarfið hafi verið afar erfitt auk þess sem tónlist hennar hafi einfaldega ekki staðist kröfur.

Síðasta plata Allen gerði ekki góða hluti, svo ekki sé meira sagt, og treysti hún því á Rodger til að koma ferli sínum á skrið á ný. Þó það hafi ekki tekist er Allen sögð eyða peningum í massavís, sem er mikið áhyggjuefni fyrir fjölskyldu hennar og vini. Þar með talið er hún sögð eyða tæpum sex milljónum króna í föt á mánuði, þrátt fyrir að fá engar stöðugar tekjur þar sem hún er hvorki að gefa út nýtt efni, né spila á tónleikum.

Vinir og fjölskylda söngkonunnar eru sögð hafa verulegar áhyggjur af hegðun Allen, en að sögn hlustar hún ekki á ráðleggingar þeirra og vill fremur skemmta sér.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant