Kjördæmaskipt dómnefnd í Söngvakeppninni

Keppendurnir í Söngvakeppninni í ár ásamt kynnum keppninnar.
Keppendurnir í Söngvakeppninni í ár ásamt kynnum keppninnar.

Hulunni hefur nú verið svipt af dómnefnd Söngvakeppni Sjónvarpsins en atkvæði hennar og atkvæði í símakosningu vega jafnt í fyrsta vali í úrslitum keppninnar á laugardagskvöldið kemur.

Þá kemur í ljós hvaða tvö lög eru stigahæst og þegar þau hafa verið flutt aftur, verður kosið á ný . Í það skipti ráðast úrslitin eingöngu með símakosningu landsmanna.

„Í ár verður sú breyting á að dómnefndin er skipuð 18 fagmönnum frá öllum sex  kjördæmum landsins.  Undanfarin ár hafa aðeins fimm setið í dómnefnd en nú er þessi háttur hafður á.  Sama fyrirkomulag verður haft í Eurovisionkeppninni sjálfri í Svíþjóð í maí,” segir í tilkynningu frá RÚV.

Íslensku dómnefndina skipa:

Norðvesturkjördæmi:

Samúel Einarsson, tónlistarmaður.

Bjarney Ingibjörg Gunnlaugsdóttir, söngkennari og kórstjóri.

Valgerður Jónsdóttir, tónmenntakennari.

Norðausturkjördæmi:

Baldvin Eyjólfsson, tónlistarkennari.

Lára Sóley Jóhannsdóttir fiðluleikari og söngkona.

Þórunn Gréta Sigurðardóttir tónskáld og formaður Tónskáldafélags Íslands.

Suðurkjördæmi:

Stefán Þorleifsson, tónlistarmaður.

Jóhann Morávek, skólastjóri Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu.

Sigrún Gróa Magnúsdóttir píanókennari.

Suðvesturkjördæmi

Ólafur Páll Gunnarsson, útvarpsmaður.

Erla Ragnarsdóttir, söngkona.

Eiður Arnarsson, tónlistarmaður.

Reykjavík norður

Björn G. Björnsson, leikmyndateiknari og tónlistarmaður.

Margrét Eir Hönnudóttir, söngkona.

Védís Hervör Árnadóttir, söngkona.

Reykjavík suður

Kamilla Ingibergsdóttir, aðstoðarmanneskja Of Monsters and Men.

Kristján Sturla Bjarnason, tónlistarmaður.

Gissur Páll Gissurarson, söngvari.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant