Úkraínskur sigur í Eurovision

Jamala flutti lagið 1944 í Globen höllinni í kvöld og …
Jamala flutti lagið 1944 í Globen höllinni í kvöld og sigraði. AFP

Úkraína hrósaði sigri á úrslitakvöldi Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðvar, sem fram fór í Globen höllinni í Stokkhólmi í kvöld. Lagið 1944 var flutt af söngkonunni Jamala og hlaut alls 534 stig. Þessi óvenju hái stigafjöldi skýrist af því að í keppninni í ár var tekin upp ný stigagjöf þar sem dóm­nefnd­ir hvers lands gefa eitt sett af stig­um og áhorf­end­ur annað.

Ástralía lenti í öðru sæti með 511 stig og Rússland í þriðja með 491 stig. 

Nýja fyrirkomulagið hleypti talsverðri spennu í keppnina, en úrslitin voru ekki ljós fyrr en tilkynnt var um að Úkraína hefði fengið næstmestan stigafjölda úr símakosningu.

Oft er sagt að pólitíkin sé lögð til hliðar þegar kemur að Eurovision en sú er ekki raunin með framlag Úkraínu í ár. Lagið vís­ar í spennu bæði á og af sviðinu milli Rúss­lands og Úkraínu. Regl­ur söngv­akeppn­inn­ar banna lög sem eru póli­tísk með op­in­ská­um hætti en Rúss­land hef­ur tekið lagi Úkraínu með drunga. Lagið vísar til ársins 1944 en vís­ar ekki beint til Tatara á Krím eða sov­éska leiðtog­ans Jós­efs Stalín en fjall­ar um reynslu ömmu henn­ar það ár sem þúsund­ir Tatara voru gerðir út­læg­ir.

Eurovision keppnin fór síðast fram í Úkraínu árið 2005 eftir að Ruslana sigraði með framlagi sínu Wild Dances árið 2004. Keppnin fer því fram í Kænugarði að ári.

Mikið var um dýrðir á sviðinu þegar hin úkranska Jamala …
Mikið var um dýrðir á sviðinu þegar hin úkranska Jamala flutti lag sitt 1944. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant