Snýr Sigmundur aftur með skegg?

Sigmundur Davíð með skeggið
Sigmundur Davíð með skeggið

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra, birti nú í morgun mynd af sér á Snapchat-reikningi sínum þar sem hann skartar skeggi. Sigmundur hefur oftast verið skegglaus, að minnsta kosti þegar hann kemur fram opinberlega.

Sigmundur fór í frí frá þingstörfum fljótlega eftir að hann sagði af sér sem forsætisráðherra vegna afhjúpana úr Panama-skjölunum svokölluðu. Hann hefur nú verið í leyfi í um sjö vikur en Hjálmar Bogi Hafliðason tók sæti hans á þingi á meðan.

Sigmundur Davíð verður gestur Páls Magnússonar í Sprengisandi í dag en hann hefur lítið sem ekkert tjáð sig opinberlega eftir að hann vék úr embætti forsætisráðherra.

Ekki liggur fyrir hvort Sigmundur verði á boðuðum þingfundi í kvöld vegna haftafrumvarpsins eða hvort hann muni skarta sama skeggi og hann sýnir á Snapchat áfram.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, fyrrverandi forsætisráðherra er yfirleitt skegglaus.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, fyrrverandi forsætisráðherra er yfirleitt skegglaus. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson