Amber Heard eitt sinn handtekin fyrir heimilisofbeldi

Amber Heard og Tasya Van Ree.
Amber Heard og Tasya Van Ree. Ljósmynd / skjáskot Mirror

Amber Heard, sem á dögunum sótti um skilnað við leikarann Johnny Depp, var eitt sinn handtekin fyrir meint heimilisofbeldi en hún er sögð hafa veist að fyrrverandi ástkonu sinni, Tasyu van Ree.

Vefmiðillinn TMZ greinir frá því að Heard og van Ree hafi sinnast 14. september 2009, þar sem þær voru staddar á flugvelli í Seattle. Þá á Heard að hafa gripið í handlegg van Ree og slegið til hennar. Leikkonan var í kjölfarið færð á lögreglustöð og þurfti hún að mæta fyrir rétt degi síðar. Þar var síðan tekin ákvörðun um að halda málinu ekki til streitu.

Heard og Depp standa um þessar mundir í hatrömmum skilnaði, en Heard hefur sakað leikarann um að hafa beitt sig líkamlegu og andlegu ofbeldi um árabil. Þá fór leikkonan fram á að fá tímabundið nálgunarbann dæmt á leikarann, sem dómstóll síðan staðfesti.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant