Undir áhrifum Deftones

Deftones hefur haft mikil áhrif á Arnór Dan söngvara Agent …
Deftones hefur haft mikil áhrif á Arnór Dan söngvara Agent Fresco. mbl.is

„Fanboy-inn í mér er alveg að springa, hann er eiginlega sprunginn og sprakk fyrir viku,“ segir Arnór Dan Arnarson, söngvari hljómsveitarinnar Agent Fresco. Sveitin mun spila á Valhalla-sviðinu klukkan 21:00 í kvöld á tónlistarhátíðinni Secret Solstice en næst á eftir þeim mun hljómsveitin Deftones stíga á stokk.

„Það er mjög gaman að fá að spila á undan þeim. Þetta er hljómsveit sem hefur haft gríðarlega mikil áhrif á mig. Ég held að það sjáist líka á mér sem performer að Chino Moreno hefur haft gríðarleg áhrif á mig,“ segir Arnór.

Hann er ánægður með Secret Solstice-tónlistarhátíðina og segir hana akkúrat það sem vantaði hér á landi. „Það vantaði svo mikið eina hátíð í bænum með svona fjölbreytta dagskrá og svo er íslenska senan líka svo vel kynnt.“

Agent Fresco munu koma fram á nokkrum tónlistarhátíðum á Íslandi í sumar en fram undan hjá þeim er tveggja vikna tónleikaferðalag í ágúst og september.  

Meðlimir hljómsveitarinnar Agent Fresco.
Meðlimir hljómsveitarinnar Agent Fresco. Morgunblaðið/Golli
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson