Die Antwoord treður upp klukkan 23

Frá Secret Solstice-tónlistarhátíðinni í Laugardalnum.
Frá Secret Solstice-tónlistarhátíðinni í Laugardalnum. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Suðurafríska rappsveitin Die Antwoord mun koma fram á Secret Solstice-tónlistarhátíðinni klukkan 23:00 í kvöld innan í Hel.

Dyrnar opna klukkan 22:30 en á sjöunda tímanum í kvöld hafði strax myndast biðröð fyrir utan Laugardalshöllina. Hvetja skipuleggjendur hátíðarinnar því alla áhugasama að mæta tímanlega í röðina.

„Eins og áður hefur komið fram þá þurfti að seinka tónleikum sveitarinnar vegna aðstæðna sem aðstandendur Secret Solstice réðu ekki við en miklar seinkanir hafa verið á millilandaflugi til
Keflavíkur í dag vegna forfalla hjá flugumferðarstjórum,“ segir í fréttatilkynningu frá skipuleggjendunum.

Nokkrar breytingar á dagskránni voru nauðsynlegar til þess að láta nýjan tíma rappsveitarinnar
ganga upp. Plötusnúðurinn Apollonia hefur verið færður í danstjaldið Ask klukkan 23:00 og
plötusnúðarnir Stephane Ghenacia og Voyeur hafa verið færðir þar til síðar um nóttina í Hel. Kerri
Chandler kemur fram klukkan 00:30 eftir að Die Antwoord hafa klárað sína tónleika.

Breski plötusnúðurinn Artwork kemur fram klukkan 18:50 á stærsta sviði hátíðarinnar Valhalla, á sama tíma og Die Antwoord áttu að koma fram.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant